top of page

Klappir

Klappir leikskóli á Akureyri

Leikskólinn Klappir er sjö deilda leikskóli sem opnaði 2021. Skólabyggingin er hönnuð af Kollgátu arkitektúr en Teiknistofa Norðurlands hannaði lóðina og umhverfi hennar samhliða hönnun húsnæðisins. Verkefnið gerði miklar kröfur til landmótunar því mikill hæðarmunur er á svæðinu og að hluta klappir sem reynt var að halda eins óröskuðum og mögulegt var. Ákveðið var að steypa myndarlega girðingu umhverfis leikskólalóðina sem brotin er upp með grindum til skapa næði fyrir leikskólastarfið en um leið að hleypa sólarljósi inn á lóðina og gefa starfsfólki og börnum kost á því að sjá umhverfið og mannlífið fyrir utan leiksvæðið. Teiknistofan lagði mikla áherslu á að girðingin færi vel með leikskólabyggingunni og yrði samofin hluti mannvirkisins. Þema hönnunarinnar var sjórinn og það gaf tóninn fyrir val á litum á yfirborð leiksvæðana. Sandkassar standa við litlar bryggjur og hluti leiktækjana eru skip og bátar.


Verkþættir: Hönnun og skipulag lóðar, val og staðsetning á leiktækjum, hönnun mannvirkja, landmótun, val á gróðri þrívíddarmódel og tækniteikningar.


Samstarfsaðilar: Kollgáta arkitektúr, verkfræðistofan Efla, Anna Kristín Guðmundsdóttir FILA.


Unnið fyrir: Akureyrarbæ

Myndir frá verkstað

TSNL TEIKNISTOFA.png

Teiknistofa Norðurlands     Glerárgata 32     600 Akureyri 

Kt: 410915-0220   Vsk  nr: 121350

Tengiliður: Arnar Birgir Ólafsson FÍLA        

Sími: 869-3380   Netfang: arnar@tsnl.is

  • Facebook
bottom of page