Áfangastaðir

Stuðlagil
Þetta vinsæla gil í Efri-Jökuldal sem er þekkt fyrir merkilega stuðlamyndun og blágrænt vatn yfir sumartímann hefur á fáum árum orðið einn vinsælasti áfangastaður á Austurlandi

Kolugljúfur
Skammt frá bænum Kolugili í Vestur-Húnavatnssýslu fellur friðsæl Víðidalsáin niður í djúpt gljúfur og steypist fram í mikilfenglegum fossum

Örlygsstaðir
Örlygsstaðir í Skagafirði var vettvangur fjölmennustu orustu sem háð hefur verið á Íslandi og átti sér stað árið 1238 en minjasvæðið er skammt ofan við þjóðveginn

Heimskautsgerðið
Heimskautsgerðið við Raufarhöfn er einstakt mannvirki sem er innblásið af norrænni goðafræði, árstíðaskiptum, stjörnufræði og samspili ljós og skugga

Hegranesþing
Hegranesþing var þingstaður Skagfirðinga á þjóðveldisöld og þar má greina tugi tófta sem flestar eru líklega búðarústir frá þingtímanum.

Glaumbær í Skagafirði
Glaumbær er bær og kirkjustaður sem er tengdur sögu landsins sterkum böndum og þar hefur Byggðarsafn Skagafirðinga staðið að sýningu gamla bæjarins frá árinu 1952.

Hofstaðir í Mývatnssveit
Hofstaðir er einstakt minjasvæði og lykilstaður í menningarsögu Norðurlanda þar sem talið er að veisluskáli hafi staðið á víkingaöld auk fjölda annarra fornleifa.

Hvítserkur
Hvítserkur er eitt þekktasta kennileiti Norðurlands og stendur 15 metra upp úr fjörunni við austanvert Vatnsnes

Arnarstapi
Arnarstapi hefur frá alda öðli verið mikilvægt kennileiti ferðalanga og árið 1953 var minnisvarði um skáldið Stefán G. Stefánsson reistur uppi á stapanum.

Borgarvirki
Borgarvirki er áberandi klettaborg milli Vesturhópsvatns og Víðidalsár en mikil dulúð hvílir yfir sögu þess sem margir álíta héraðsvígi frá söguöld.

Gásir
Gásir við Eyjafjörð var helsti verslunarstaður á Norðurlandi á miðöldum og þar er Gásahátíðin haldin árlega til að endurskapa mannlíf og handverk frá 14. öld