
Stuðlagil
Heildarskipulag fyrir ferðaþjónustu- og áfangastaðinn Stuðlagil. Rammahluti aðalskipulags.
Teiknistofa Norðurlands vann heildarskipulag fyrir ferðamannastaðinn Stuðlagil á árunum 2021-2023. Skipulagið var unnið í nánu samstarfi við landeigendur á jörðum við austur- og vesturhlið gilsins og birtist sem aðalskipulagsbreyting, rammahluti Aðalskipulags Fljótsdalshéraðs 2008-2028.
Í skipulaginu er sett fram stefna um framtíðaruppbyggingu svæðisins svo hægt sé að efla ferðamennsku samhliða annari atvinnustarfssemi, draga úr álagi á viðkvæm svæði, setja fram hönnunarmarkmið fyrir mannvirki ásamt því að tryggja öryggi og ánægjulega upplifun gesta. Samhliða gerð skipulagsins var unnin þolmarka- og arðsemisgreining fyrir svæðið af verkfræðistofunni Eflu. Þá var Efla einnig fengin til að gera öryggisúttekt vegna hrun- og fallhættu í og við gilið. Auk vinnu við aðalskipulagið vann teiknistofan líka deiliskipulag fyrir jarðirnar Grund og Hákonarstaði við Stuðlagil.
Teiknistofan fullhannaði útsýnispalla, tröppur, brýr og göngustíga beggja vegna gilsins. Veturinn 2023-2024 vann teiknistofan og og Efla smíðateikningar og útboðsgögn fyrir öll mannvirki við vesturhlið Stuðlagils sem voru svo smíðuð og sett upp sumarið 2024. Um var að ræða fjóra útsýnispalla, þrjár brýr, tröppur og hundruð metra af göngustígum í bröttum hlíðunum neðan við Grund.
Verkþættir: Skipulagsvinna, landslagshönnun, gönguleiðir, skilti, útsýnispallar, brýr, tröppur, aðgengis- og öryggismál, þrívíddarlíkön.
Samstarfsaðilar: Verkfræðistofan Elfa, Anna Kristín Guðmundsdóttir FÍLA
Unnið fyrir: Austurbrú og Múlaþing
Project Gallery


