
Stígakerfi Akureyrar
Stígakerfi Akureyrar, heildarskipulag - Breyting á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030
Í ársbyrjun 2021 staðfesti Skipulagsstofnun breytingu á aðalskipulagi Akureyrar sem felur í sér nýtt heildarskipulag fyrir stígakerfi bæjarfélagsins. Áætlunin setur gangandi vegfarendur í forgang og sýnir hvernig umferð gangandi og hjólandi vegfarenda verður aðskilin með sérstökum tvístefnu hjólastígum í framtíðinni. Stefna bæjarins er að byggja upp sjálfstætt hjólastígakerfi með auknum aðskilnaði frá annarri umferð. Skipulagið fjallar einnig um reiðstíga og uppbyggingu útivistarstíga sem gegna mikilvægu hlutverki fyrir útivistarmöguleika og náttúruupplifun í nærumhverfi bæjarins.
Megin markmið skipulagsins er að á Akureyri verði byggt upp öruggt, heilsusamlegt og aðlaðandi stígakerfi sem gerir íbúum kleift að nýta vistvæna ferðamáta fyrir ferðir sínar til vinnu, daglegra erinda og fyrir frístundir allan ársins hring.
Í stígaskipulaginu eru skilgreindar stofn- og tengileiðir sem tengja saman íbúðarhverfin við skóla, vinnukjarna og stofnanir. Akureyri er sannkölluð vetrarparadís og geta stígar bæjarins verið snjóþungir á dimmum vetrarmorgnum. Markmið skipulagsins eru að þessar leiðir fái forgang í árstíðarbundinni þjónustu, verði greiðfærar allt árið og hvetji þannig íbúa á öllum aldri að ferðast um bæinn á vistvænan hátt. Svifryksmengun hefur verið mikið í umræðunni síðustu ár en stígaskipulagið hvetur til þess að göngu- og hjólaleiðum sé haldið fjarri mengun og hávaða. Þar sem stígar liggja nærri umferðarmiklum götum er lagt til að færa stígana og skapa þannig um leið svæði fyrir ofanvatnslausnir með gróðri sem mildar ásýnd, bætir loftgæði og hefur jákvæð áhrif á upplifun vegfarenda.
Verkþættir: Greining á núverandi stöðu, markmiðasetning, skipulagsvinna og myndræn framsetning.
Samstarfsaðilar: Anna Kristín Guðmundsdóttir FÍLA
Unnið fyrir: Akureyrarbæ
Project Gallery


