top of page

Heimskautsgerðið

Heimskautsgerðið við Raufarhöfn er einstakt mannvirki sem er innblásið af norrænni goðafræði, árstíðaskiptum, stjörnufræði og samspili ljós og skugga


Hugmynd að heimskautsgerðinu er sprottið úr vangaveltum Erlings Thoroddsen um hvernig hægt væri að virkja hina miklu víðáttu Melrakkasléttu þar sem ekkert skyggir á sjóndeildarhringinn, heimskautsbirtuna og miðnætursólina. Haukur Halldórsson listamaður kom að málum árið 2000 og saman unnu þeir Erlingur að hugmyndinni þar til hún tók á sig sannfærandi mynd. Þessi hugmynd var svo kynnt árið 2003 og framkvæmdir hófust árið eftir á Melrakkaásnum 700 metra norðvestan við Raufarhöfn. Byggingarefnið kom til að byrja með að mestu úr grjótnámu gamla Raufarhafnarhrepps. Síðan 2004 hefur verið unnið að uppbyggingu gerðisins með nokkrum hléum.


Gerðið myndar 50 metra hring og byggð hafa verið upp fjögur sex metra há hlið sem vísa til höfuðáttana. Í miðju hringsins er tíu metra há súla sem stendur á fjórum stólpum. Stórt malbikað bílastæði hefur verið útbúið skammt neðan við ásinn og þaðan liggur göngubrúin Bifröst upp að gerðinu. Í Heimskautagerðinu er gert ráð fyrir fjórum skúlptúrum sem hver hafa sitt hlutverk. Fyrsti skúlptúrinn var reistur í nóvember 2025 og ber hann nafnið Altari elds og vatns.


Samstarf Erlings Thoroddsen og Arnar Birgis hjá Teiknistofu Norðurlands hófst árið 2013 og fólst fyrstu árin aðallega í aðstoð við styrkjaumsóknir og hugmyndavinnu en árið 2016 hófst vinna við deiliskipulag svæðisins.


Teiknistofa Norðurlands 2017

Heimskautsgerðið við Raufarhöfn - Deiliskipulag

Skipulagsuppdráttur

Greinargerð

Skýringaruppdráttur


Vinna við uppbyggingu skv. deiliskipulaginu hófst í kjölfarið með gerð göngubrúarinnar Bifrastar upp að gerðinu og stórt malbikað bílastæði var útbúið fyrir neðan Melrakkaásinn. Verkfræðistofan Efla var fengin til að teikna raf- og vatnslagnir fyrir svæðið ásamt því að útfæra útboðsgögn fyrir bílastæðið og Bifröst. Jensson hönnunarhús sá lýsingahönnun Bifrastar.


Teiknistofa Norðurlands 2018-2020

Bifröst - Göngubrú upp að Heimskautsgerðinu

Bílastæði, stéttir, byggingarreitur þjónustuhúss og umhverfi.


Árið 2025 sá teiknistofan um að útfæra og teikna nákvæma uppdrætti af framtíðarsýn gerðisins og þeirra mannvirkja sem á að byggja upp á Melrakkaásnum. Sú vinna byggðist á útfærslum á ótal skissum og módelum sem var afrakstur af samvinnu Erlings og Halldórs. Fyrsti skúlpturinn var smíðaður eftir þessum teikningum árið 2025 og reistur í gerðinu. Steinsmiðja Akureyrar vann með teiknistofunni við útfærslur á skúlptúrunum.


Teiknistofa Norðurlands 2025

Heimskautsgerðið - Gerðið og umhverfi þess

Heimskautsgerðið - Skúlptúrar


Að lokum verður að geta þess að uppbyggingu gerðisins er að miklu leiti byggð á sjálfboðaliðastarfi einstaklinga sem hafa unnið mikla og óeigingjarna vinnu með það að markmiði að láta drauminn um Heimskautsgerðið verða að veruleika.


Verkþættir: Skipulagsvinna, landslagshönnun, bílastæði, stígar, göngubrú / göngupallar, þrívíddalíkön, teikningar og úfærsla mannvirkja skv. frumskissum.


Samstarfsaðilar: Verkfræðistofan Efla, Jensson hönnunarhus og Steinsmiðja Akureyrar.


Unnið fyrir: Stjórn Heimskautsgerðisins, Norðurþing, Samstök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra


Myndir frá verkstað

TSNL TEIKNISTOFA.png

Teiknistofa Norðurlands     Glerárgata 32     600 Akureyri 

Kt: 410915-0220   Vsk  nr: 121350

Tengiliður: Arnar Birgir Ólafsson FÍLA        

Sími: 869-3380   Netfang: arnar@tsnl.is

  • Facebook
bottom of page