top of page

Hvítserkur

Hvítserkur er eitt þekktasta kennileiti Norðurlands og stendur 15 metra upp úr fjörunni við austanvert Vatnsnes

Teiknistofa Norðurlands skipulagði bílastæði við Hvítserk árið 2014 og vann fullnaðarhönnun af bílastæðinu og umhverfi þess árið 2016-2017 fyrir sveitarfélagið Húnaþing vestra.


Teiknistofa Norðurlands 2017

Fullnaðarhönnun bílastæðis


Árið 2018-2020 vann teiknistofan frumhönnun af tröppum frá útsýnispalli niður í fjöruna við Hvítserk. Verkið fól í sér rannsóknir á svæðinu, samskipti við stofnanir og landeigendur, drónamyndatökur og mælingar. Þá vann teiknistofan með Húnaþingi vestra við að sækja um styrki og gera kostnaðaráætlanir fyrir deiliskipulag og framkvæmdir á svæðinu.


Teiknistofa Norðurlands 2020

Tröppur frá útsýnispalli niður í fjöru - frumhönnun


Verkþættir: Skipulagsvinna, landslagshönnun, drónamyndataka og mælingar, gerð þrívíddarlíkana, kostnaðaráætlanir, samskipti við stofnanir og landeigendur.


Samstarfsaðilar: Svarmi, verkfræðistofan FHG og verkfræðistofan Efla.


Unnið fyrir: Húnaþing vestra

Myndir frá verkstað

TSNL TEIKNISTOFA.png

Teiknistofa Norðurlands     Glerárgata 32     600 Akureyri 

Kt: 410915-0220   Vsk  nr: 121350

Tengiliður: Arnar Birgir Ólafsson FÍLA        

Sími: 869-3380   Netfang: arnar@tsnl.is

  • Facebook
bottom of page